Fotbolti.net
28.09.26 - 17:49
Kári Snorrason

Líklegt byrjunarlið Íslands - Gylfi kemur inn og Mikael færist ofar

Gylfi er í líklegu byrjunarliði.

Gylfi er í líklegu byrjunarliði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Ísland mætir Lúxemborg annað kvöld í öðrum leik liðsins í C-deild Þjóðadeildarinnar. Leikurinn fer fram á hinum stórglæsilega Stade de Luxembourg og verður flautað til leiks 18:45.

Ísland gerði 1-1 jafntefli við Eistland í fyrsta leik riðilsins og spáum við því að Arnar Gunnlaugsson geri tvær breytingar á liði sínu frá þeim leik.

„Það verða einhverjar breytingar. Eðli málsins samkvæmt. Albert er ekki að spila og svo er þetta fjögurra leikja gluggi,“ sagði Arnar á blaðamannafundi landsliðsins fyrr í dag.
Arnar: Eins og við viljum þetta of mikið
TENGT EFNI

Arnar: Eins og við viljum þetta of mikið

Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 0 Ísland
Albert Guðmundsson mun ekki taka frekar þátt í verkefninu þar sem hann fór úr axlarlið í fyrri hálfleik gegn Eistum. Ísak Snær Þorvaldsson kom inn fyrir Albert í leiknum en við spáum því að Mikael Egill Ellertsson færist ofar á völlinn og leysi kantstöðuna.

Logi Tómasson myndi þá koma inn í vinstri bakvörðinn í stað Mikaels. Logi kom inn á í stað Mikaels á 84. mínútu gegn Eistum.

Þá tippum við á að Gylfi Þór Sigurðsson komi inn í byrjunarlið Íslands á kostnað Ísaks Bergmanns Jóhannessonar.

Kristall Máni Ingason hefur verið að gera það gott í Noregi að undanförnu og er eflaust hvað næst liðinu. Hann gæti komið inn á hægri kant, í stað Jóns Dags Þorsteinssonar.

Þá er spurning hvort að Stefán Teitur Þórðarson haldi sæti sínu í miðverðinum, aðrir kostir í þá stöðu eru Aron Einar Gunnarsson og Hörður Björgvin Magnússon.

Mikael byrjaði sem bakvörður gegn Eistum en getur vel leyst kantstöðuna.

Mikael byrjaði sem bakvörður gegn Eistum en getur vel leyst kantstöðuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Logi kom inn á sem varamaður gegn Eistum.

Logi kom inn á sem varamaður gegn Eistum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.