Fotbolti.net
29.09.26 - 08:52
Kári Snorrason

Veðbankar hallast að Íslandi

Kári Snorrason skrifar frá Lúxemborg:

Frá æfingu Íslands í gær.

Frá æfingu Íslands í gær.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Eimskip
Ísland leikur sinn annan í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld er liðið heimsækir Lúxemborg. Flautað verður til leik klukkan 18:45 á hinum glæsilega Stade de Luxembourg leikvangi.

Ísland er efsta lið riðilsins á heimslista FIFA, í 74. sæti, en Lúxemborg situr 24 sætum neðar, í 98. sæti.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 0 Ísland
Ísland gerði svekkjandi 1-1 jafntefli við Eistland í fyrsta leik riðilsins á meðan Lúxemborg vann sterkan 2-1 útisigur á Búlgaríu.

Þrátt fyrir úrslit helgarinnar telja veðbankar Ísland sigurstranglegra liðið. Epicbet gefur Íslandi 2.17 í stuðul, 3.29 er á jafntefli og 3.50 í stuðul á sigur Lúxemborgar.

Orri Steinn Óskarsson er jafnframt talinn líklegastur allra til að skora í leiknum. Stuðullinn á að hann komist á blað er sléttir 3,00. Orri skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark einmitt gegn Lúxemborg fyrir þremur árum.

Ísland vann síðast fótboltaleik í nóvember á síðasta ári er liðið heimsótti Aserbaísjan heim. Síðan þá hefur Ísland spilað sjö leiki, tapað fjórum og gert þrjú jafntefli.
Stade de Luxembourg tekur tæplega tíu þúsund manns í sæti.

Stade de Luxembourg tekur tæplega tíu þúsund manns í sæti.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.