29.09.26 - 10:30
Kári Snorrason
Rúmir tíu mánuðir síðan Ísland vann síðast fótboltaleik - „Finn að viljinn sé til staðar“
Kári Snorrason skrifar frá Lúxemborg:

Án sigurs í síðustu sjö leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Frá æfingu Íslands í gær.

Mynd: Kári Snorrason

Án sigurs í síðustu sjö leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Rúmir tíu mánuðir eru síðan íslenska karlalandsliðið vann síðast fótboltaleik, en síðasti sigurinn kom gegn Aserbaísjan í Bakú í nóvember á síðasta ári.
Á þessum tíu mánuðum hefur liðið spilað sjö leiki, tapað fjórum og gert þrjú jafntefli. Ísland fær tækifæri til að snúa aftur á sigurbraut í kvöld er liðið sækir Lúxemborg heim í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 0 Ísland
Hákon Arnar Haraldsson var spurður á blaðamannafundi landsliðsins í gær hversu mikill sigurvilji væri í liðinu þar sem langt er frá síðasta sigurleik.
„Maður væri varla í þessu ef manni langaði ekki til þess að vinna. Við þurfum að gera meira af því. Ég finn alveg að viljinn í liðinu sé til staðar. Þá værum við ekki í þessu - ef við myndum ekki gera okkar besta og vinna alla leiki. Sigurleikirnir hafa ekki verið nægilega margir og við þurfum að gera betur í því,“ sagði Hákon.
Flautað verður til leiks klukkan 18:45 á Stade de Luxembourg í kvöld og verður leikurinn að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.