29.09.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Málpípa Ronaldo talar um brotin loforð - „Þetta lítur ekki vel út“

Cristiano Ronaldo sat allan tímann á bekknum gegn Noregi

Mynd: EPA

Blaðamaðurinn Pedro Sousa segir að Jorge Jesus, þjálfari portúgalska landsliðsins, hafi ekki staðið við loforð sem hann gaf Cristiano Ronaldo. Það sem vekur þó sérstaka athygli er að Sousa starfar hjá miðli sem Ronaldo á hlut í.

TENGT EFNI
Ronaldo ónotaður varamaður í fyrsta sinn í 18 ár
Ronaldo á um 30 prósenta hlut í Correio da Manha Rádio og starfar Sousa bæði sem framkvæmdastjóri miðilsins og blaðamaður.
Hann sagði á NowCanal að án Ronaldo hefði Jesus líklega ekki verið ráðinn og að þeir tveir hefðu fundað um framtíðina áður en verkefnið í Þjóðadeildinni hófst.
„Ronaldo gerði mikið til þess að Jorge Jesus yrði ráðinn sem þjálfari landsliðsins,“ sagði Sousa.
Hann heldur því fram að Jesus hafi gefið Ronaldo ákveðin loforð, en eftir síðasta leik sagði Sousa að þjálfarinn hefði ekki staðið við þau. Ronaldo byrjaði fyrsta leikinn gegn Wales en kom ekkert við sögu gegn Noregi þrátt fyrir að vera til taks á bekknum.
„Núna er Jesus að gera eitthvað allt annað en það sem hann og Ronaldo sömdu um í ágúst áður en hópurinn var valinn. Þjálfarinn getur útskýrt þetta betur ef hann vill og sagt hvert samkomulagið var, en þetta lítur alla vega ekki vel út,“ sagði Sousa.