29.09.26 - 08:30
Kári Snorrason
Spaðalegi völlur Lúxemborgar sem Ísland getur horft til - Arnar orðinn þreyttur á stöðunni
Kári Snorrason skrifar frá Lúxemborg:

Klæðningin er úr eins konar stáltíglum.

Mynd: Kári Snorrason

Frá æfingu Íslands í gær.

Mynd: Kári Snorrason

Flóðljós eru í efstu stálrimlunum.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Klæðningin er úr eins konar stáltíglum.

Mynd: Kári Snorrason

Ísland mætir Lúxemborg í kvöld á glæsilegum þjóðarleikvangi heimamanna. Völlurinn tekur tæplega tíu þúsund manns í sæti, rétt eins og Laugardalsvöllur, en er lokaður allan hringinn.
Búist er við 8.500 manns á leiknum í kvöld, þar af um 50 Íslendingum.
Búist er við 8.500 manns á leiknum í kvöld, þar af um 50 Íslendingum.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 0 Ísland
Leikvangurinn var vígður árið 2021 og var hann fjögur ár í byggingu. Hybrid gras er á vellinum og var yfir litlu að kvarta þegar undirritaður heimsótti völlinn í gærdag.
Byggingarkostnaður vallarins nam um 77 milljónum evra, eða um 11 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar er kostnaður við nýja Þjóðarhöll í Laugardal tæpir 17 milljarðar króna.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður út í völlinn glæsilega á blaðamannafundi landsliðsins í gærdag.
„Þetta er glæsilegt mannvirki, tekur um tíu þúsund manns í sæti. Það er orðið vel þreytt að koma til margra landa, bæði með landsliðinu og Víkingi, og alveg sama hvaða lönd það eru að þá er þau öll með frábæra velli. Við einhvern veginn sitjum eftir í súpunni. Þetta er bagalegt ástand,“ sagði Arnar í gær.

TENGT EFNI
Fer yfir næstu skref á Laugardalsvelli - „Setjum mikla pressu á þetta“

Frá æfingu Íslands í gær.

Mynd: Kári Snorrason

Flóðljós eru í efstu stálrimlunum.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Kári Snorrason

Mynd: Kári Snorrason

Mynd: Kári Snorrason

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir