Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 21:03
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Aston Villa í úrslit eftir stórkostlega frammistöðu - Mæta Freiburg
John McGinn skoraði tvö í stórsigri Villa
John McGinn skoraði tvö í stórsigri Villa
Mynd: EPA
Nottingham Forest er úr leik
Nottingham Forest er úr leik
Mynd: EPA
Freiburg mætir Villa í úrslitum
Freiburg mætir Villa í úrslitum
Mynd: EPA
Aston Villa mun leika til úrslita í Evrópudeildinni þetta árið eftir að hafa sópað Nottingham Forest, 4-0, í seinni undanúrslitaleik liðanna á Villa Park í kvöld. Liðið mætir Freiburg í úrslitaleiknum sem er spilaður í Istanbúl eftir þrettán daga.

Forest vann frábæran 1-0 sigur á Villa í fyrri leiknum á City Ground-leikvanginum, en Villa svaraði með enn betri frammistöðu í kvöld.

Unai Emery, stjóri Villa, kom öllum á óvart með því að hafa sænska varnarmanninn Victor Lindelöf sem djúpan miðjumann. Ákvörðun sem gekk fullkomlega upp.

Það tók tíma fyrir Villa-menn að brjóta ísinn, en þeir voru alltaf með stjórn og var ekki hvort heldur hvenær Villa myndi skora. Það var Ollie Watkins sem gerði það eftir undirbúning Emi Buendia vinstra megin.

Forest var ánægt með að fara inn í hálfleikinn aðeins einu marki undir, en þeir náðu aldrei að stilla saman þessa frægu strengi. Í þeim síðari völtuðu Villa-menn yfir þá.

Snemma í síðari hálfleiknum fengu heimamenn vítaspyrnu er Nikola Milenkovic togaði Pau Torres niður í teignum. Augljós vítaspyrna og eftir VAR-skoðun benti dómarinn á punktinn og skoraði Buendia örugglega úr spyrnunni.

John McGinn, sem hefur án efa verið mikilvægasti leikmaður Villa síðasta áratuginn, var síðan maðurinn sem sendi liðið örugglega í úrslitin með tveimur mörkum á þremur mínútum á lokakaflanum.

Mörkin voru keimlík. Hann fékk boltann hægra megin í teignum og setti hann með vinstri. Í fyrr markinu setti hann boltann í vinstra hornið, en í seinna markinu setti hann boltann í hægra hornið.

Stórkostleg frammistaða í alla staði og Villa komið í úrslit Evrópudeildarinnar þar sem það mætir Freiburg.

Freiburg vann tíu leikmenn Braga, 3-1, og samanlagt 4-3 í einvíginu.

Mario Dorgeles sá rauða spjaldið í liði Braga á 6. mínútu og náðu heimamenn í Freiburg að skora tvö mörk áður en hálfleikurinn var úti. Lukas Kubler og Johan Manzambi gerðu mörkin áður en Kubler gerði þriðja markið tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Pau Victor minnkaði muninn á 79. mínútu en lengra komust Braga-menn ekki. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Freiburg kemst í úrslitaleik í Evrópukeppni á meðan Villa er að spila í úrslitum í Evrópu í annað sinn.

Freiburg 3 - 1 Braga (4-3, samanlagt)
1-0 Lukas Kubler ('19 )
2-0 Johan Manzambi ('41 )
3-0 Lukas Kubler ('72 )
3-1 Pau Victor ('79 )
Rautt spjald: Mario Dorgeles, Braga ('6)

Aston Villa 4 - 0 Nott. Forest (4-1, samanlagt)
1-0 Ollie Watkins ('36 )
2-0 Emiliano Buendia ('57 , víti)
3-0 John McGinn ('77 )
4-0 John McGinn ('80 )
Slapp
banner
banner