Crystal Palace og Rayo Vallecano eru komin í úrslitaleik í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögunni eftir að haf unnið undanúrslitaeinvígi sín í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.
Palace fór með 3-1 forystu inn í seinni leikinn sem var spilaður á Selhurst Park og með nokkuð gott veganesti.
Þeir þurftu þó að hafa fyrir hlutunum og voru að gæla við góða endurkomu áður en Pedro Henrique setti boltann í eigið net á 25. mínútu eftir að hafa fengið skot frá Daniel Munoz í sig og í netið.
Níu mínútum síðar jafnaði Shakhtar er Equinaldo fékk boltann í teignum með bakið í markið, tók eina snertingu og skoraði með frábæru skoti.
Palace komst aftur í forystu snemma í síðari hálfleiknum með marki Ismaila Sarr sem skoraði af stuttu færi. Það var sjötta mark hans í síðustu fimm Sambandsdeildarleikjum.
Ensku bikarmeistararnir sigldu þessu örugglega heim og eru komnir í úrslit í Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Rayo Vallecano verður andstæðingur Palace eftir að hafa unnið annan 1-0 sigur á Strasbourg.
Alemao skoraði eina markið á 42. mínútu í fyrri hálfleik þar sem Strasbourg virtist aldrei líklegt. Vallecano var yfir á öllum sviðum leiksins.
Strasbourg átti séns að komast inn í einvígið undir lok leiks er þeir fengu vítaspyrnu en Augusto Batalla varði frá Julio Enciso. Frábær frammistaða hjá Rayo yfir þessa tvo leiki sem er einnig að spila til úrslita í Evrópu í fyrsta sinn.
Crystal Palace 2 - 1 Shakhtar D (5-1, samanlagt)
1-0 Pedro Henrique ('25 , sjálfsmark)
1-1 Eguinaldo ('34 )
2-1 Ismaila Sarr ('52 )
Strasbourg 0 - 1 Rayo Vallecano (0-2, samanlagt)
0-1 Alemao ('42 )
0-1 Julio Enciso ('90 , Misnotað víti)


