Fotbolti.net
25.06.26 - 12:36
Elvar Geir Magnússon

Áfall fyrir West Ham

Það var meiri gleði hjá Tomas Soucek í upphafi mótsins.

Það var meiri gleði hjá Tomas Soucek í upphafi mótsins.

Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Tomas Soucek virtist meiðast illa á hné en hann var borinn af velli í 3-0 tapi Tékklands gegn gestgjöfum Mexíkó á Azteca vellinum.

Soucek meiddist illa þegar hann var að setja pressu á Guillermo Ochoa, hinn fræga markvörð Mexíkóa.
HM: Mexíkó með öruggan sigur - Suður-Afríka komst áfram
TENGT EFNI

HM: Mexíkó með öruggan sigur - Suður-Afríka komst áfram

Þetta var vont kvöld fyrir Soucek og Tékka en tapið gerði það að verkum að þeir eru úr leik á HM, enduðu mótið með aðeins eitt stig.

Soucek, sem er 31 árs, spilar fyrir West Ham en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á liðinni leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.