Fotbolti.net
25.06.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 9. umferðar - Skákaði læriföðurnum

Þór/KA vann loksins leik.

Þór/KA vann loksins leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Níunda umferð Bestu deildar kvenna kláraðist á dögunum. Þór/KA vann sinn fyrsta leik og Aðalsteinn Jóhann Friðriksson skákaði þar sinn gamla læriföður, Jóhann Kristinn Gunnarsson.

María Dögg Jóhannesdóttir var maður leiksins en Hildur Anna Birgisdóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir léku mjög fyrir Þór/KA í leiknum. Karen Hulda er bara 17 ára en lék mjög vel í hjarta varnarinnar.
Sterkasta lið 8. umferðar - Systurnar þarna saman
TENGT EFNI

Sterkasta lið 8. umferðar - Systurnar þarna saman



Þá er Stjarnan á miklu skriði en þær unnu 3-0 sigur gegn Fram. Birna Jóhannsdóttir átti stórleik og skoraði þrennu. Þá halda Andrea Mist Pálsdóttir og Telma Steindórsdóttir að leika frábærlega.

Breiðablik skellti sér aftur á toppinn með 0-3 útisigri gegn ÍBV þar sem Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel voru sterkar.

Tinna Brá Magnúsdóttir sá til þess að Valur fór með eitt stig úr Kaplakrika og Margrét Brynja Kristinsdóttir átti einnig góðan leik gegn gömlu félögunum.

Þá var Hildur Katrín Snorradóttir best á vellinum í Njarðvík þar sem Grindavík/Njarðvík gerði 1-1 jafntefli við Víking.
Birna Jóhannsdóttir skoraði þrennu.

Birna Jóhannsdóttir skoraði þrennu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tinna Brá átti góðan leik í marki Vals.

Tinna Brá átti góðan leik í marki Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Þrjú lið á leið í titilbaráttu?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.