Stoke kynnir nýtt merki - Skiptar skoðanir meðal stuðningsmanna

Nýja merkið.

Mynd: Stoke City

Nýja merkið.

Mynd: Stoke City
Stoke City hefur kynnt nýtt merki félagsins. Ef marka má viðbrögð stuðningsmanna undir færslu félagsins á samfélagsmiðlum eru skoðanirnar skiptar.
Svartsýnir stuðningsmenn segja nýja merkið keimlíkt öðrum merkjum hjá liðum í League 2 og einkennandi fyrir komandi tíma hjá félaginu.
Stoke hafnaði í 17. sæti í Championship deildinni á síðasta tímabili. Félagið hefur mikla Íslandstengingu þar sem íslenskt eignarhald var á félaginu um og upp úr aldamótum.
Þá stýrði Guðjón Þórðarson liðinu um hríð og fjölmargir íslenskir leikmenn léku fyrir félagið.

Inspired by our past, modernised for our future.
— Stoke City FC (@stokecity) June 25, 2026
Our new club crest is official ?????

Gamla merkið.

Mynd: Stoke City