Fotbolti.net
25.06.26 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Hér ætti úrslitaleikurinn að fara fram

Azteca völlurinn sögufrægi.

Azteca völlurinn sögufrægi.

Canon

Mynd: EPA

„Úrslitaleikurinn ætti með réttu að fara fram á þessum velli," segir John Murray hjá breska ríkisútvarpinu um Azteca leikvanginn sögufræga í Mexíkó.

Azteca er meðal leikvanga HM og þar fór meðal annars opnunarleikur mótsins fram. Hinsvegar verður úrslitaleikurinn spilaður í New Jersey í Bandaríkjunum.
Bestu og verstu vellirnir á HM 2026
TENGT EFNI

Bestu og verstu vellirnir á HM 2026

„Þetta er Azteca. Hér lekur fótboltasagan úr öllum sprungum. Þótt völlurinn hafi verið nútímavæddur er hann ennþá staðurinn þar sem Carlos Alberto skoraði fræga fjórða mark Brasilíu í úrslitaleiknum 1970 og þar sem Diego Maradona lék sinn besta leik fyrir Argentínu árið 1986. Það undarlega er að völlurinn virðist hafa sama glitrandi anda og ég man eftir frá sjónvarpsáhorfi fyrir öllum þessum árum," segir Murray.

Hann segir að Azteca sé klárlega besti leikvangur mótsins en hann var einmitt á toppnum á lista sem Fótbolti.net setti saman fyrir mótið. Diego Maradona og Pele skrifuðu fótboltasöguna á þessum goðsagnaennda leikvangi.

Úrslitaleikurinn verður spilaður á MetLife leikvangnum í New Jersey en valið hefur hlotið talsverða gagnrýni.
Hér ætti úrslitaleikurinn að fara fram
Canon

Mynd: Azteca leikvangurinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.