Gils framlengir við FH

Fæddur árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fæddur árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gils Gíslason hefur framlengt samning sinn við uppeldisfélagið FH út tímabilið 2029. Fyrri samningur var í gildi út núverandi tímabil.
Gils er átján ára kantmaður sem býr yfir gífurlegum hraða. Hann hefur skorað tvö mörk í deildinni á tímabilinu sem bæði komu gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli.
"Við erum mjög ánægðir með að hafa framlengt við Gils. Hann hefur alla burði í það að verða lykilmaður hjá okkur á næstu misserum.
Hlutverk hans hefur stækkað í ár og með hans hraða og x-faktor þá er það sameiginleg ábyrgð leikmannsins og félagsins að halda áfram að þróa og bæta leik hans svo að hann nái að springa út," var haft eftir Davíð Þór Viðarssyni, yfirmanni fótboltamála FH, í tilkynningu félagsins.