Fotbolti.net
07.06.17 - 22:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hólmar Örn: Þetta er fljótt að gerast hjá gamla

Auglýsing
Hólmar var sáttur með sigurinn í kvöld.

Hólmar var sáttur með sigurinn í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er fljótt að gerast hjá gamla, ég er svo duglegur að æfa,\" sagði Hólmar Örn Rúnarsson, leikmaður Keflavíkur, eftir öruggan 3-0 sigur liðsins á Haukum í kvöld.

Hólmar sleit krossband í fyrra, en hann er að snúa aftur. Hann spilaði allar 90 mínútur í 3-0 sigrinum á Haukum.
„Við náðum fínu flæði og náðum að opna, fengum fullt af fyrirgjöfum og fengum fín mörk,\" sagði Hólmar um leikinn.

Jeppe Hansen spilaði ekki með Keflavík í kvöld og samt náði liðið að skora þrjú mörk, Hólmar var ánægður með það.

„Virkilega sterkt að skora, og án Jeppe, hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur og það er gott að sjá að við getum spilað án hans,\" sagði hann að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.