Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   sun 07. júní 2026 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Evra um Yamal: Myndi éta hann lifandi
Patrice Evra er yfirlýsingaglaður
Patrice Evra er yfirlýsingaglaður
Mynd: EPA
Patrice Evra, fyrrum leikmaður Manchester United og franska landsliðsins, sagði á ESPN að hann hefði ekki átt í neinum vandræðum með að stöðva Lamine Yamal þegar hann var upp á sitt besta.

Það er óumdeilanlegt að Evra kemst á lista yfir tíu bestu vinstri bakverði 21. aldarinnar.

Hann var hluti af mögnuðu liði Manchester United og gerði einnig góða hluti með Mónakó og Juventus.

Frakkinn er yfirlýsingaglaður og liggur ekki á skoðunum sínum en eflaust eru margir ósammála skoðun sem hann lét flakka í viðtali við ESPN. Þar sagðist hann auðveldlega hafa getað ráðið við Lamine Yamal, stjörnuleikmann Barcelona og Spánar, þegar hann var upp á sitt besta.

Evra sagðist hafa gert þeim Lionel Messi, Cristiano Ronaldo og fleirum erfitt fyrir en það á þó til að gleymast að hann tapaði þremur úrslitaleikjum gegn Messi. Tvisvar með Manchester United árin 2009 og 2011 og síðan árið 2015 þegar hann var á mála hjá Juventus.

Messi var maður leiksins í báðum úrslitaleikjunum gegn United og átti góðan leik í 3-1 sigrinum á Juventus.

„Því miður, Lamine. Ég elska þig ótrúlega mikið en ég hefði étið þig lifandi þegar ég var upp á mitt besta. Spurðu Cristiano Ronaldo, Lionel Messi og aðra leikmenn sem mættu mér. Ég er ekki góður vinur,“ sagði Evra.

Evra hafði sigur gegn Messi í einu einvígi á ferlinum en það var í undanúrslitum Meistaradeildarinnar árið 2008. United vann Barcelona 1-0 samanlagt og endaði á að fara alla leið.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner