27.07.26 - 22:32
Brynjar Ingi Erluson
Markvörður Parma til PSG?

Zion Suzuki gæti fært sig um set í sumar

Mynd: EPA

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru komnir í baráttuna um Zion Suzuki, markvörð Parma og japanska landsliðsins. Sky Sports segir frá.
Hinn 23 ára gamli Suzuki er kominn á radar PSG en framtíð Lucas Chevalier hjá félaginu er óráðin.
PSG keypti Chevalier frá Lille fyrir 34 milljónir punda á síðasta ári en hann gæti verið á förum í sumar. Franska stórveldið sér Suzuki sem ákjósanlegan arftaka hans.
Sky hafði áður greint frá áhuga Juventus á Suzuki. Hann er varakostur ítalska félagsins takist því ekki að fá Emiliano Martínez frá Aston Villa.
Viðræður Juventus og Aston Villa um Martínez hafa verið settar á ís. Enska félagið taldi fyrsta tilboð Juventus langt undir verðmati leikmannsins.
Suzuki stóð sig vel með Japan á heimsmeistaramótinu, en hann er einnig á óskalista Villa fari Martínez frá félaginu í sumar.