Fotbolti.net
27.07.26 - 22:19
Brynjar Ingi Erluson

Barcelona og Man City spyrjast fyrir um Kroupi

Barcelona og Man City spyrjast fyrir um Kroupi
Canon

Mynd: EPA

Barcelona og Manchester City hafa bæði spurst fyrir um franska sóknarmanninn Eli Junior Kroup sem er á mála hjá Bournemouth á Englandi.
Kroupi sló í gegn með Bournemouth á síðasta tímabili eftir að hafa áður gert góða hluti með Lorient í frönsku B-deildinni.

Hann er eftirsóttur en Bournemouth er staðráðið í að halda honum í að minnsta kosti eitt ár til viðbótar.

Spánarmeistarar Barcelona hafa þó augastað á Frakkanum ef félaginu tekst ekki að kaupa Julian Alvarez frá Atletico Madrid. Manchester City hefur einnig spurst fyrir um stöðu hans í þessum mánuði. Þetta segir Fabrizio Romano.

Allir eru falir fyrir rétt verð en talið er að tilboð þurfi að nema að minnsta kosti 85 milljónum punda til að Bournemouth íhugi sölu.

Hinn tvítugi Kroupi skoraði þrettán mörk í 33 deildarleikjum á síðasta tímabili. Bournemouth tekur þátt í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á komandi leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.