Fotbolti.net
27.07.26 - 22:03
Daníel Smári Magnússon

Siggi Höskulds: Fannst hrikalega mikið hjarta í þessu

Auglýsing
Siggi var ánægður með svar sinna manna í seinni hálfleik.

Siggi var ánægður með svar sinna manna í seinni hálfleik.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

„Bara leikur eins og maður bjóst við. Miklar tilfinningar og taugatrekkjandi. Mér fannst við ekki góðir í fyrri hállfeik, hins vegar fannst mér við betri aðilinn í seinni en höfðum ekki alveg lappirnar í það að klára þennan leik. Mér fannst við fá of marga sénsa og of margar stöður til að skapa ekki fleiri færi,'' sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir spennuþrunginn grannaslag á KA svæðinu í kvöld.

Lestu um leikinn: KA 0 - 0 Þór

Það vantaði aðeins uppá gæðin á síðasta þriðjungnum hjá báðum liðum og fátt um fína drætti þegar kom að opnum marktækifærum. 

„Mér fannst alveg hrikalega mikið hjarta í þessu, bjuggum til stöður og móment til þess að vinna þennan leik. Þeir fengu einhver breik á okkur líka, en heilt yfir svolítið svekktur að klára ekki leikinn. En hinsvegar bara stoltur af liðinu og "in the end" bara allt í lagi stig en hefðum átt að vinna, fannst mér,'' sagði Sigurður.

Aron Einar Gunnarsson er farinn aftur til Katar eftir örstutt stopp í Þorpinu. Kom það aldrei til greina að hann spilaði leikinn í dag og var þetta vitað fljótlega eftir Víkingsleikinn? Sigurður var stuttorður þegar hann tæklaði spurningarnar.

„Neinei, þetta kom upp og við vissum að þetta gæti komið upp. En bara einn leikmaður, skiptir engu máli.''

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.