Fotbolti.net
27.07.26 - 23:48
Brynjar Ingi Erluson

Ætla ekki að virkja endurkaupsréttinn á Quansah í sumar

Ætla ekki að virkja endurkaupsréttinn á Quansah í sumar
Canon

Mynd: EPA

Liverpool ætlar ekki að virkja endurkaupsákvæðið í samningi enska varnarmannsins Jarell Quansah hjá Bayer Leverkusen í sumar.
Quansah var seldur til Bayer Leverkusen fyrir 35 milljónir punda á síðasta ári og hefur vegnað vel í Þýskalandi. Hann var í landsliðshópi Englendinga á heimsmeistaramótinu og kom þar við sögu í þremur leikjum.

Hann var næsti kostur á eftir Reece James í stöðu hægri bakvarðar og frammistaðan á mótinu sýndi hversu mikið hann hefur vaxið sem leikmaður.

Mikið hefur verið rætt um hvort Liverpool nýti endurkaupsákvæði sem félagið setti í samkomulagið við Leverkusen. Samkvæmt Aadam Patel, blaðamanni BBC, stendur það þó ekki til í sumar.

Enskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Liverpool geti keypt Quansah aftur fyrir 69 milljónir punda í sumar. Endurkaupsverðið lækkar hins vegar í 52 milljónir að ári.

Líklegra er því að Liverpool leyfi honum að halda áfram að þroskast hjá Leverkusen og taki stöðuna aftur næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.