Fotbolti.net
27.07.26 - 22:01
Brynjar Ingi Erluson

Mætti sínum gömlu liðsfélögum aðeins tveimur vikum eftir skiptin

Fanney Inga stóð í marki Vålerenga gegn sínu gamla liði

Fanney Inga stóð í marki Vålerenga gegn sínu gamla liði

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Evrópubikars- og Svíþjóðarmeistarar Häcken unnu Vålerenga, 2-0, í æfingaleik í dag.
Leikurinn var sérstaklega áhugaverður fyrir þær sakir að Fanney Inga Birkisdóttir gekk til liðs við Vålerenga frá Häcken fyrir aðeins tveimur vikum.

Fanney stóð í marki Vålerenga sem er að undirbúa sig fyrir síðari hluta tímabilsins. Arna Eiríksdóttir er einnig á mála hjá norska félaginu.

Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliði Häcken sem vann leikinn, 2-0. Tabby Tindell og Aivi Luik skoruðu mörkin.

Hlín Eiríksdóttir, systir Örnu, var í byrjunarliði Malmö sem tapaði 1-0 fyrir Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni.

Malmö er í þriðja sæti með 21 stig en þetta var fyrsta tap liðsins síðan í maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.