Fotbolti.net
27.07.26 - 22:42
Brynjar Ingi Erluson

Gakpo hafnaði Fenerbahce

Gakpo hafnaði Fenerbahce
Canon

Mynd: EPA

Hollenski sóknarmaðurinn Cody Gakpo hafnaði því að ganga til liðs við tyrkneska stórveldið Fenerbahce fyrr í sumar. Tyrkneski blaðamaðurinn Samet Cayir greinir frá þessu.
Cayir er blaðamaður sem sérhæfir sig í fréttum af Fenerbahce. Hann segist hafa traustar heimildir fyrir því að Gakpo hafi verið eitt af fyrstu nöfnunum á óskalista félagsins fyrir sumargluggann.

Fenerbahce setti sig í samband við umboðsmenn Gakpo til að kanna möguleg félagaskipti en Hollendingurinn hafnaði því að ganga til liðs við félagið.

Tyrkneska stórveldið var reiðubúið að bjóða Gakpo mjög góð laun en það dugði ekki til að freista hans.

Gakpo er 27 ára gamall og hefur verið á mála hjá Liverpool frá árinu 2023 þegar hann kom frá PSV. Hann var lykilmaður undir stjórn Arne Slot en óvíst er hversu stórt hlutverk hann fær hjá Andoni Iraola sem tók við af Slot.

Tottenham er einnig sagt hafa áhuga á Gakpo en ekki liggur fyrir hvort Liverpool sé tilbúið að selja hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.