Fotbolti.net
07.07.21 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Allir leikir sýndir beint í enska boltanum

Tómas Þór ræðir við Jóhann Berg í útsendingu frá Englandi.

Tómas Þór ræðir við Jóhann Berg í útsendingu frá Englandi.

Canon

Mynd: Getty Images

Allir 380 leikirnir í ensku úrvalsdeildinni verða í beinni útsendingu á Síminn Sport á komandi leiktíð.

Þetta segir Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans í Sjónvarpi Sím­ans, í Twitter-færslu í dag.

Það verður þó ekki eins og á síðustu leiktíð þar sem leikjunum var dreift á fleiri leiktíma en venjan hefur verið vegna heimsfaraldursins og áhorfendabanni.
„Premier League hefur staðfest við Síminn Sport að við megum sýna alla 380 leikina á næstu leiktíð. Farið verður aftur í gamla góða kick off slot formatið, samt sem áður. Við fáum því alltaf nokkra leiki á sama tíma kl. 15. á laugardögum. Veislan hefst 13. ágúst," skrifar Tómas.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.