Fotbolti.net
29.09.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Íslenska landsliðið heimsækir Lúxemborg í kvöld

Ísland heimsækir Lúxemborg í annarri umferð Þjóðadeildarinnar í kvöld

Ísland heimsækir Lúxemborg í annarri umferð Þjóðadeildarinnar í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Íslenska karlalandsliðið leikur annan leik sinn í C-deild Þjóðadeildarinnar þegar liðið heimsækir Lúxemborg klukkan 18:45 í kvöld. Fylgst verður með leiknum í beinni textalýsingu á Fótbolti.net.
Fyrsta landsliðsmark fyrirliðans kom gegn Lúxemborg
TENGT EFNI

Fyrsta landsliðsmark fyrirliðans kom gegn Lúxemborg

Arnar Gunnlaugsson og lærisveinar hans byrjuðu keppnina ekki með ákjósanlegum hætti þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við Eistland á Laugardalsvelli, sem verða að teljast töluverð vonbrigði.

Strákarnir fá tækifæri til að bæta fyrir það gegn Lúxemborg, sem er í 98. sæti á heimslista FIFA, 24 sætum neðar en Ísland.

Lúxemborg vann Búlgaríu 2-1 í fyrstu umferðinni og því væri afar mikilvægt fyrir Ísland að sækja sigur og koma í veg fyrir að Lúxemborg næði of miklu forskoti fyrir komandi leiki.

Leikur dagsins:
18:45 Búlgaría-Eistland (Hristo Botev Stadium)
18:45 Lúxemborg-Ísland (Stade de Luxembourg)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.