Fotbolti.net
29.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Einn af markaskorurum Úrúgvæ rann til og úlnliðsbrotnaði

De Arrascaeta verður frá næstu vikur

De Arrascaeta verður frá næstu vikur

Canon

Mynd: EPA

Giorgian de Arrascaeta, einn af lykilmönnum úrúgvæska landsliðsins, meiddist illa í 4-1 sigri liðsins á Suður-Kóreu í vináttulandsleik í gær og þurfti að fara af velli.
Vináttulandsleikir: Nunez og Ueda með tvennur
TENGT EFNI

Vináttulandsleikir: Nunez og Ueda með tvennur

De Arrascaeta skoraði annað mark Úrúgvæ á 10. mínútu, en þessi öflugi sóknarsinnaði miðjumaður náði ekki að klára leikinn.

Í síðari hálfleik rann hann til og reyndi að taka fallið af sér með hægri hendinni, en meiddist illa við það.

Læknateymi Flamengo, félagsliðs hans, hefur staðfest að hann hafi úlnliðsbrotnað og gæti þurft að fara í aðgerð.

Hann ætti að geta byrjað að æfa á ný eftir rúmar tvær vikur, en verður líklega ekki orðinn leikfær fyrr en eftir fjórar til sex vikur og þá með sérstaka spelku.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.