Fotbolti.net
07.07.21 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ancelotti sagður vilja vinna aftur með Richarlison

Richarlison er brasilískur landsliðsmaður.

Richarlison er brasilískur landsliðsmaður.

Canon

Mynd: Getty Images

Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid, hefur áhuga á að vinna aftur með Brasilíumanninum Richarlison.
Þetta kemur fram á ESPN en útgáfa miðilsins í Brasilíu - heimalandi Richarlison - telur sig hafa heimildir fyrir þessu.

Ancelotti vann með Richarlison hjá Everton en Real Madrid mun ekki landa honum ódýrt. Everton hafnaði 100 milljón evra tilboði frá Barcelona í leikmanninn í fyrra.

Richarlison er 24 ára gamall framherji sem gekk í raðir Everton frá Watford fyrir þremur árum.

Á síðustu leiktíð skoraði hann 13 mörk í 40 keppnisleikjum með Everton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.