Fotbolti.net
06.07.26 - 11:50
Elvar Geir Magnússon

Ronaldo skaut á fjölmiðlamenn: Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár

Cristiano Ronaldo.

Cristiano Ronaldo.

Canon

Mynd: EPA

„Ég er ekki sá leikmaður sem ég var áður," segir Cristiano Ronaldo en hann ræddi við fjölmiðla fyrir leikinn gegn Spáni í 16-liða úrslitum HM sem fram fer í kvöld.

Hinn 41 árs gamli Ronaldo staðfesti aftur að þetta væri hans síðasta heimsmeistaramót. Ronaldo hefur fengið ansi mikla gagnrýni fyrir misjafna frammistöðu en segir að það sé ekkert nýtt og skaut á fjölmiðlamenn.

Ronaldo ræddi um framtíð sína og gagnrýnina.
HM í dag - Íberíuslagur áður en Balogun mætir Belgíu
TENGT EFNI

HM í dag - Íberíuslagur áður en Balogun mætir Belgíu

„Ég er ekki að standa mig svona illa. Þið hafið reynt að drepa mig síðustu 23 ár en þið hljótið að sjá að það er ekki þess virði. Það er tímasóun en þið haldið áfram að reyna og reyna og reyna og reyna."

„Ég mun hætta þegar ég ákveð það, ekki þegar þið ákveðið það. Þetta verður mitt síðasta HM en vonandi verður leikurinn gegn Spáni ekki minn síðasti leikur."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.