Ipswich nær samkomulagi við Toulouse

Emersonn í leik með Toulouse gegn PSG

Mynd: EPA

Emersonn í leik með Toulouse gegn PSG

Mynd: EPA
Nýliðar Ipswich Town hafa náð samkomulagi við Toulouse um brasilíska framherjann Emersonn.
Ipswich og Hull hafa bæði verið að eltast við þennan 21 árs gamla framherja, en 17 milljóna punda tilboði Hull var hafnað í síðasta mánuði.
Sky Sports segir Ipswich nú komið í bílstjórasætið, en félagið hefur náð samkomulagi við Toulouse um kaupverð.
Ipswich fékk 26,6 milljóna punda tilboð samþykkt og mun Toulouse einnig fá prósentu af næstu sölu.
Emersonn er á leið til Englands í læknisskoðun og ef ekkert óvænt gerist mun hann ganga í raðir Ipswich.