Fotbolti.net
07.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Úlfarnir með auga á landsliðsmanni Kanada

Úlfarnir með auga á landsliðsmanni Kanada
Canon

Mynd: EPA

Wolves hefur mikinn áhuga á að fá miðjumanninn Niko Sigur frá króatíska félaginu Hajduk Split.
Sigur, sem er 22 ára gamall, var frábær með kanadíska landsliðinu á HM þar sem liðið komst alla leið í 16-liða úrslit.

Hann er falur fyrir rétt verð í sumar, en talið er að Hajduk vilji fá í kringum 2,5 milljónir punda fyrir hann.

Þessi varnarsinnaði miðjumaður hefur spilað 22 landsleiki fyrir Kanada eftir að hafa áður leikið með yngri landsliðum Króatíu.

Sigur hefur komið að tíu mörkum með Hajduk í króatísku úrvalsdeildinni, en gæti nú verið á leið til Úlfanna, sem féllu úr ensku úrvalsdeildinni í vor.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.