07.08.26 - 20:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Emma með fernu fyrir Grindavík/Njarðvík - Þór/KA lagði Fram

Emma Nicole Phillips

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erin Flurey

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Emma Nicole Phillips

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveimur leikjum er lokið í Bestu deild kvenna í kvöld. Grindavík/Njarðvík lagði ÍBV í áhugaverðum leik.
ÍBV komst yfir snemma leiks þegar Allison Patricia Clark skoraði eftir sendingu upp allan völlinn frá Guðnýju Geirsdóttur, markverði liðsins.
ÍBV komst yfir snemma leiks þegar Allison Patricia Clark skoraði eftir sendingu upp allan völlinn frá Guðnýju Geirsdóttur, markverði liðsins.
Emma Nicole Phillips jafnaði metin stuttu síðar og hún komst í ótrúlegan gír. Hún kom liðinu yfir fimm mínútum eftir að hafa jafnað metin. Hún fullkomnaði þrennu sína þegar hún skoraði eftir fyrirgjöf frá Hildi Katrínu Snorradóttir. Emma var ekki hætt því hún setti svo fjórða mark Grindavíkur/Njarðvíkur og fjórða mark sitt.
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, var eðlilega ekki sáttur með gang mála og gerði fjórfalda skiptingu undir lok fyrri hálfleiksins.
Eyjakonur byrjuðu seinni hálfleikinn betur og Ágústa María Valtýsdóttir minnkaði muninn eftir sendingu frá Olgu Sevcova.
Nær komust Eyjakonur ekki og Grindavík/Njarðvík stóð uppi sem sigurvegari. Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með 19 stig, tveimur stigum á eftir ÍBV sem er í 4. sæti.
Þór/KA fékk Fram í heimsókn. Fyrri hálfleikurinn var bragðdaufur og staðan var enn markalaus í hálfleik. Þór/KA náði forystunni snemma í seinni hálfleik þegar Karen Hulda Hrafnsdóttir setti boltann í netið af harðfylgi.
Amalía Árnadóttir fékk gott færi til að bæta öðru marki Þór/KA við en skotið beint á Ashley Orkus í marki Fram.
Erin Flurey innsiglaði sigur Þór/KA undir lokin. Hún lék á varnarmann Fram og skoraði framhjá Ashley sem var í boltanum en það dugði ekki til.
Fram tókst ekki að vinna sig inn í leikinn og Þór/KA fór með sigur af hólmi. Þór/KA fór upp fyrir Þrótt í 7. sæti með 15 stig, liðið er aðeins stigi á eftir Fram sem er í 6. sæti.
Þór/KA 2 - 0 Fram
1-0 Karen Hulda Hrafnsdóttir ('53 )
2-0 Erin Flurey ('84 )
Lestu um leikinn
Grindavík/Njarðvík 4 - 2 ÍBV
0-1 Allison Patricia Clark ('8 )
1-1 Emma Nicole Phillips ('16 )
2-1 Emma Nicole Phillips ('21 )
3-1 Emma Nicole Phillips ('29 )
4-1 Emma Nicole Phillips ('37 )
4-2 Ágústa María Valtýsdóttir ('54 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 13 | +25 | 30 |
| 2 | Breiðablik | 13 | +24 | 30 |
| 3 | Stjarnan | 14 | +5 | 23 |
| 4 | ÍBV | 14 | -3 | 21 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 14 | -5 | 19 |
| 6 | Fram | 13 | -9 | 16 |
| 7 | Þróttur R. | 14 | -5 | 15 |
| 8 | Þór/KA | 13 | -7 | 12 |
| 9 | Víkingur R. | 13 | -12 | 11 |
| 10 | Valur | 13 | -13 | 10 |