07.08.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ferna og fjórföld skipting í fyrri hálfleik

Emma Nicole Phillips

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emma Nicole Phillips

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er ótrúlegur leikur í gangi í Nettóhöllinni í Njarðvík þar sem ÍBV er í heimsókn hjá Grindavík/Njarðvík.
Staðan er 4-1 í hálfleik, heimakonum í vil. Allison Patricia Clark kom Eyjakonum yfir snemma leiks en Emma Nicole Phillips svaraði með fjórum mörkum.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 4 - 2 ÍBV
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, var alls ekki sáttur með gang mála og gerði fjórfalda skiptingu undir lok fyrri hálfleiksins.
„Ótrúlegur fyrri hálfleikur að baki. ÍBV byrjaði betur og tók forystuna en svo hefur Grindavík/Njarðvík gjörsamlega tekið yfir leikinn og svarað með fjórum mörkum. ÍBV gerði fjórfalda breytingu núna áðan og líklega verður einhvers konar hárblásari í hálfleik," skrifaði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í textalýsingunni hér á Fótbolti.net.