Fotbolti.net
07.08.26 - 22:25
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Matthías himinlifandi eftir sigurinn: Það kom stress og læti

Auglýsing
Matthías himinlifandi eftir sigurinn: Það kom stress og læti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

„Mjög glaður, alveg himinlifandi" sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals eftir 1-0 sigur gegn Víkingi á heimavelli.

Lestu um leikinn: Valur 1 - 0 Víkingur R.

„Það er svo gaman í fótbolta, það er ótrúlega gaman að vinna og ótrúlega leiðinlegt að tapa."

Matthías var ánægður með frammistöðu Vals í dag.

„Ég var ánægður með hana, það kom stress og læti þegar það fór að líða á. Við gerðum margt mjög vel og náðum að spila varnarleik mjög vel í níutíu mínútur."

Var mikil pressa og stress á liðinu fyrir leikinn?

„Ég lagði þetta ekki upp þannig og það var einmitt það sem við ákváðum að ýta burt. Staðan er bara svona, þetta er í okkar höndum að breyta þessu. Ef maður ætlar að fara velta sér upp úr þessu alveg stanslaust, þá fer það að hafa neikvæð áhrif. Eina sem við getum gert er að fara í gegnum einn dag í einu og leggja okkur mjög vel fram á hverjum einasta degi."

Emma Hawkins byrjaði annan leikinn sinn í röð, skoraði eina mark leiksins.

„Mjög kröftug, hún er ekki búin að spila í ákveðin tíma áður en hún kom hingað. Það er bara magnað í hversu góðu standi hún er, miðað við það. Níutíu mínúturnar sem hún er búin að fá í lappirnar fram af þessu, þetta hjálpar allt og hún var mjög kröftug í dag og vann ekkert smá fyrir liðið í þokkabót."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.