07.08.26 - 21:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Varnarmaðurinn setti fernu - Aldrei spilað þarna fyrir komuna til Íslands
Auglýsing

Emma Nicole Phillips.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emma Nicole Phillips.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var frábær liðssigur," sagði Emma Nicole Phillips, leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir 4-2 sigur gegn ÍBV í Bestu deild kvenna.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 4 - 2 ÍBV
Emma er vön því að spila sem miðvörður en í dag lék hún lengst af fremst á vellinum og nýtti það vel þar sem hún skoraði öll fjögur mörkin hjá sínu liði með stuttu millibili í fyrri hálfleik.
„Ég er vanalega varnarmaður og hef ekki hugmynd um hvað ég er að gera þarna fremst. Gylfi (Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur) telur að þetta gangi upp og hann hefur rétt fyrir sér í 99% tilfella."
Hún segist elska að spila fremst á vellinum en hún gerði líka þrennu þegar hún spilaði þar í Lengjudeildinni í fyrra.
„Þetta er gaman, minna stress. Ég hafði aldrei spilað þessa stöðu áður en ég kom til Íslands."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.