Víkingur á botninum - „Það er nóg eftir í þessu, þetta er ekki búið"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður mjög illa" sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkings eftir 1-0 tap á útivelli gegn Val. Víkingur hefur núna ekki náð að sigra í átta leikjum í röð og sitja í 10. sæti.
Einar segir að frammistaða Víkings var vond.
„Við vorum svolítið mikið að tapa dúelunum, tapa einvígunum framan af. Áttum erfitt með að halda boltanum, sköpum okkur eiginlega ekki neitt. Valur gerði það svo sem ekki heldur, en þær komast samt yfir eftir mistök hjá okkur. Það er bara það sem þær vildu og þær voru mjög þéttar, það má ekki taka það af þeim. Stóðu sig vel, valsararnir. En við hefðum átt að gera miklu betur."
Víkingur fékk tvo nýja leikmenn í vikunni. Tuomala byrjaði leikinn en Rhode var á bekknum, en kom svo seinna inn á.
„Saana (Tuomala) var svo sem ekki hræðileg þrátt fyrir að hún gerði þessi mistök í upphafi og Thea (Rhode) reyndi sitt besta eftir að hún kom inn á, en það gekk ekki upp hjá henni."
„Í undanförnum leikjum hefur liðið verið óheppið með ýmislegt. En við getum svo sem ekki farið að kenna eitthvað um óheppni í dag, við þurfum að mæta ákveðin til leiks og ekki vera með hjartað í buxunum. Það er það fyrsta sem við þurfum að gera. Við þurfum kannski að setjast niður þjálfarateymið og athuga hvort að við getum gert eitthvað á æfingum í vikunni til þess að rífa upp sjálfstraustið."
„Manni líður svona eftir þennan leik, en það er nóg eftir í þessu, þetta er ekki búið. Ótrúlegir hlutir hafa gerst með liðið, með þetta langt eftir og haldið sér uppi með þetta marga leiki eftir."
