Helgi Sig: Við ætlum okkur að vinna þessa deild
Auglýsing

Helgi Sig má vera kátur í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sig má vera kátur í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Sigurðsson þjálfari Fylkis var að vonum ánægður eftir 3-1 sigur sinna manna á Þrótti í kvöld.
„Ég er hrikalega stoltur af liðinu. Við sýndum það í dag hversu mikið vildum vinna þennan leik og vorum betri á flestum sviðum og verðskulduðum sigurinn.\"
Fylkir fór langleiðina með að tryggja sig upp í Pepsi deildina með þessum sigri og þarf ansi mikið að gerast til að koma í veg fyrir það.
„Þetta er náttúrulega ekki alveg komið en þetta lýtur vel út. Markmiðum er þó ekki alveg náð þar sem að við ætlum að vinna þessa deild. Þetta er frábær hópur sem er búinn að leggja mikið á sig og við erum að uppskera núna og við ætlum ekkert að slá slöku við síðustu tvo leikina heldur koma að krafti inní þá og vinna þá.\"
Aðspurður um framhaldið var Helgi nokkuð bjartsýnn.
„Það eru allir leikir erfiðir í þessari Inkasso deild ef þú kemur ekki á fullu inní þá og við erum bara ákveðnir í því að vinna þessa leiki og sjá svo bara til hvort að það dugi til að vinna deildina\" sagði Helgi að lokum