Fotbolti.net
07.09.23 - 16:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Steini talar hreint út um Bestu deildina: Mótið allt annað núna en það var

Auglýsing
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Ég hlakka til að takast á við þessa tíu daga sem við eigum saman framundan. Ég hef enga trú á öðru en að við eigum eftir að njóta þess og við eigum eftir að sjá liðið vera með góða frammistöðu. Ég vil sjá fólk mæta á völlinn og styðja því leikmennirnir eiga það skilið. Það er ekkert sjálfgefið að við séum með landslið á þessum mælikvarða. Þær eiga skilið að fá fullan völl hérna," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, þegar hann ræddi við Fótbolta.net eftir fréttamannafund í dag.
Þorsteinn tilkynnti á fundinum landsliðshóp sinn fyrir komandi landsleiki gegn Wales og Þýskalandi í Þjóðadeildinni síðar í þessum mánuði í Þjóðadeildinni. Stelpurnar spila við Wales heima og Þýskaland ytra.

Sjá einnig:
Leikmannahópur Íslands í Þjóðadeildinni - Sandra Sig og Fanney markmenn Vals valdar

Ljóst er að miklar breytingar hafa orðið á liði Íslands á einu ári en síðan liðið fór á EM í Englandi síðasta sumar. Margir reynslumiklir leikmenn eru ekki í hópnum lengur og það eru að koma nýir leikmenn inn. Hvernig er að ganga í gegnum svona miklar breytingar?

„Það hefur verið krefjandi, en skemmtilegt líka. Við höfum verið að ná í úrslit og ég er sáttur við margt sem við höfum gert á þessu ári. Það er ekkert sjálfsagt mál að þú náir í góð úrslit í þessum breytingum, en það sýnir að við eigum fullt af leikmönnum sem geta tekið við keflinu," sagði Þorsteinn.

Sandra Sigurðardóttir markvörður snýr aftur í landsliðið eftir einn leik með Val. Reynsla hennar er mikilvæg að mati Steina.

„Það er stærsta ástæðan, reynslan sem hún hefur sem markvörður. Ég taldi það mikilvægt að við hefðum einn markvörð með reynslu í þessum hóp."

Markmiðin í þessari nýju keppni
Þjóðadeildin er ný keppni í kvennaboltanum en markmiðið er að búa til fleiri erfiða leiki fyrir betru liðin og meira krefjandi verkefni. Með góðum árangri í Þjóðadeildinni er svo hægt að vinna sér inn sæti á Ólympíuleikunum og koma sér í betri stöðu fyrir undankeppni Evrópumótsins.

„Ég er bjartsýnn. Mér finnst við vera klár í þetta. Við þurfum að fá leikmenn til að stíga upp enn betur og sýna frammistöðu sem við getum verið stolt af, og leiða til góðra úrslita. Ég vil fá leikmenn upp á tærnar, að við séum klár í þetta sem lið og hópur. Ef við erum það, þá munum við standa okkur vel," segir Steini.

„Markmiðið er að vera í einu af tveimur efstu sætunum, það er alveg ljóst. Það er markmiðið og þá þurfum við að vinna leiki. Til vara er það að halda sér í deildinni sem þýðir að við gætum þurft að fara í umspil í febrúar. Það eru grunnmarkmiðin okkar."

Besta deildin ekki góð til að byrja með
Í hópnum eru margir leikmenn úr Bestu deildinni sem er enn í fullum gangi. Steini fylgist vel með þeirri deild og var spurður út í hana í viðtalinu.

„Mér fannst Besta deildin ekki góð til að byrja með. Þó að þetta var mjög jafnt þá byrjaði hún ekki vel. Ég ætla að tala hreint út. Ef við skoðum eftir níu leiki, þá voru fjögur lið ekki búin að skora eitt mark að meðaltali í leik. Fimmta liðið náði marki að meðaltali í leik. Fyrri parturinn var ekki skemmtilegur. Leikir voru rosalega hægir og þetta var mjög varnarsinnað, rosalega lítið af færum í leikjum," sagði landsliðsþjálfarinn.

„Svo hefur þetta stigið upp og þetta hefur lagast mikið. Það er allt annað að sjá þetta undanfarin mánuð miðað við hvernig þetta var fyrri helminginn. Það var ekki skemmtilegt þó mótið hafi verið jafnt."

Valur er á toppnum og er búið að stinga af. Þær eru að fara að vinna Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð.

„Ég var alltaf að bíða eftir því að eitthvað lið myndi ekki leyfa Val að vera efst. Mér finnst lið vera hrædd við þær. Mótið er samt allt annað núna og það er meira fjör, þó Valur sé búið að vinna það. Leikir eru skemmtilegri og opnari, betri fótbolti en var áður."

Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan þar sem Steini fer um víðan völl.
Sandra kemur aftur inn í hópinn.

Sandra kemur aftur inn í hópinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stelpurnar okkar eru að fara að hefja leik í Þjóðadeildinni.

Stelpurnar okkar eru að fara að hefja leik í Þjóðadeildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur er búið að stinga af í Bestu deildinni.

Valur er búið að stinga af í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.