Fotbolti.net
07.10.16 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Rúnar Már: Undirbý mig eins og ég sé að fara að spila

Auglýsing
Rúnar í Frakklandi í sumar.

Rúnar í Frakklandi í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson verður í leikbanni gegn Tyrklandi á sunnudag. Rúnar Már Sigurjónsson er einn af þeim sem kemur til greina í að fylla skarð Arons á miðjunni.

Hafliði Breiðfjörð spurði Rúnar á æfingu í dag hvort hann væri bjartsýnn á að fá sætið?
„Ég bara veit það ekki. Það eru nokkrir sem koma til greina í að spila þessa stöðu. Ég er alltaf klár ef vilji er fyrir hendi. Ég ætla að undirbúa mig eins og ég sé að fara að spila, svo kemur þetta bara í ljós,\" segir Rúnar sem var ónotaður varamaður gegn Finnum í gær.

„Við eigum góðar minningar frá síðasta heimaleik gegn Tyrkjum. Við erum bjartsýnir og ætlum að vinna þennan leik. Tyrkir eru mjög góðir með boltann og halda honum vel innan liðsins. Við þekkjum leikstíl þeirra vel. Vonandi verður kalt hérna, þeim líkar það ekki. Við þurfum toppleik til að vinna þá.\"

Eftir EM í sumar gekk Rúnar í raðir Grasshoppers í Sviss, liðið er í fjórða sæti í deildinni heima en heil 13 stig eru upp í Basel sem er á toppnum.

„Ég er búinn að vera í sóknarsinnaðra hlutverki en ég er vanur. Liðinu hefur gengið upp og niður en ég hef náð að byrja þetta ágætlega. Ég er sáttur hingað til. Ég er að skora og það er gaman,\" segir Rúnar en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.