Fotbolti.net
07.10.20 - 15:05
Elvar Geir Magnússon

Man Utd keypti engan af óskalista Solskjær

Ole Gunnar Solskjær.

Ole Gunnar Solskjær.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United tókst ekki að kaupa einn einasta leikmann af óskalistanum sem Ole Gunnar Solskjær lét félagið fá fyrir gluggann sem lokaðist í vikunni.

United náði í Edinson Cavani, Alex Telles, Amad Traore og Facundo Pellistri á lokadegi gluggans en áður hafði félagið keypt Donny van de Beek frá Ajax.

En samkvæmt heimildum ESPN var enginn þessara leikmanna á óskalista Solskjær fyrir gluggann.
Solskjær vildi fá Jadon Sancho frá Dortmund, Jack Grealish frá Aston Villa og miðvörð til að spila við hlið Harry Maguire. Þar voru efstir á blaði Dayot Upamecano hjá RB Leipzig og Nathan Ake sem fór frá Bournemouth til Manchester City.

Sagt er að félagið hafi þó ráðfært sig við Solskjær varðandi alla leikmenn sem fengnir voru.

Solskjær reyndi að fá Erling Haaland í janúarglugganum en leikmaðurinn fór frekar til Dortmund svo óhætt er að segja að áætlanir United á leikmannamarkaðnum hafi verið langt frá því að ganga upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.