Jói Kalli: Gríðarlegt mótlæti þjappaði okkur ennþá meira saman
FH einungis tapað tveimur leikjum síðan í maí

FH-ingar fóru hægt af stað í mótinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einungis tapað tveimur leikjum síðan í maí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Misstu af nokkuð mörgum stigum á heimavelli fyrri hluta sumars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag er FH eitt heitasta lið deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjöppuðu sér saman eftir erfiða byrjun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH-ingar fóru hægt af stað í mótinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag heimsækja FH-ingar Vestmannaeyjar og fyrir leikinn gegn ÍBV ræddi Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, við Fótbolta.net.

Uppfært markmið hjá FH: Verið sársaukafyllra en við héldum
„Ég held að mótlætið sem við gengum í gegnum í upphafi móts, það voru gríðarlega miklir erfiðleikar í því og það voru hlutir og leikir kannski sem að féllu ekki með okkur: heima á móti KA, heima á móti ÍA, heima á móti Fram þar sem að við erum komnir í 3-1... þetta eru allt leikir sem að tapast einhvern veginn ósanngjarnt. Ég held að það hafi bara þjappað okkur ennþá meira saman. Við gáfumst ekki upp og sýndum karakter, menn mótast oft í mótlæti og það var alveg gríðarlegt mótlæti í byrjun tímabils. Ég held að það hafi þjappað okkur saman, plús svo liðsstyrkurinn sem við fengum í glugganum. Það myndaðist einhver trú og samstaða og vilji til þess að gera hlutina saman. Ég held að það sé bara það sem við höfum náð að búa til sem hópur úr þessu liði sem að uppsker núna mikið meiri velgengni og sigrarnir eru að detta okkur í hag."
Hafði ekki áhyggjur af sinni stöðu
Þú nefnir þessa heimaleiki þar sem hlutirnir féllu ekki með ykkur, hafðir þú á þeim tímapunkti áhyggjur af þinni stöðu sem þjálfari liðsins?
„Nei, ég hafði ekkert áhyggjur af henni en maður gerir sér náttúrulega alveg grein fyrir því að þegar hlutir eru ekki að falla með manni í fótbolta þá getur náttúrulega ýmislegt gerst. En það var aldrei að minni hálfu kominn einhver tími á að fara að endurskoða stöðuna. Það var bara næsti leikur sem við vorum að vinna í og við nýttum vikuna vel á milli."
„Svo voru náttúrulega líka tveir leikir fyrri part sumars: heima á móti ÍBV og heima á móti Þór, tveir jafnteflisleikir sem við hefðum alltaf átt að vinna að mínu viti. Sama skapi fyrsti leikurinn hérna úti í Eyjum líka, við hefðum alveg átt sigurinn skilið."
„Ég gerði mér grein fyrir því og þeir sem stýra félaginu gerðu það líka að það að breyta aðeins um kúrs og yngja liðið mun alveg taka tíma og okkur grunaði nú alveg að þetta yrði erfitt með svona ungt lið. Ég var að fókusa á viku fyrir viku, leik fyrir leik, að reyna vinna í hlutum sem ég gæti haft áhrif á og við sem hópur gætum haft áhrif á. Það voru tekin lítil skref í einu."
„Nei, ég hafði ekki ekki áhyggjur af því að vera að missa starfið en ég geri mér alveg grein fyrir því að sú staða hefði alveg getað komið upp, þannig er það bara í fótbolta."
Upplifði enga hræðslu við fall
Undirritaður ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, snemma í júlí og þá sagði hann frá því að markmið FH á þeim tímapunkti væri að halda sætinu í deildinni.
Hjálpaði það ykkur?
„Ég held að í upphafi, þegar menn voru að fara yfir stöðuna, þá var aldrei nein pressa á því að ná efri hlutanum, þó svo að við kannski sem hópur höfðum alveg trúað því að ef að hlutir myndu smella hjá okkur að við gætum þá alveg verið í baráttunni um að komast í efra umspilið."
„En eins og við töluðum um bara núna fyrr í þessu spjalli þá voru svo margir leikir sem að duttu ekki með okkur og við vissum að það yrði alltaf erfitt en það var klárlega markmiðið komandi inn í tímabilið."
„Að sama skapi skiptir það öllu máli að vera áfram í Bestu deildinni, en ég hef allavega ekki upplifað það þannig að menn hafa verið í einhverri hræðslu við það að missa sætið sig upp í deildinni, mín upplifun hefur verið þannig að menn hafi verið vel innstilltir á að reyna enda þetta tímabil eins ofarlega og hægt er," segir Jói Kalli að lokum.
Leikurinn í Eyjum hefst klukkan 17:00 í dag.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einungis tapað tveimur leikjum síðan í maí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Misstu af nokkuð mörgum stigum á heimavelli fyrri hluta sumars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag er FH eitt heitasta lið deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjöppuðu sér saman eftir erfiða byrjun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Besta karla - Neðri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Valur | 25 | -5 | 31 |
| 2 | Stjarnan | 25 | -12 | 31 |
| 3 | FH | 25 | -4 | 30 |
| 4 | KA | 25 | -10 | 26 |
| 5 | Þór | 25 | -33 | 24 |
| 6 | ÍBV | 25 | -16 | 19 |

