Fotbolti.net
16.10.26 - 12:55
Elvar Geir Magnússon

Martínez með gegn Leeds - Carrick segir andann innan Man Utd hópsins góðan

Lisandro Martínez.

Lisandro Martínez.

Canon

Mynd: EPA

Varnarmaðurinn Lisandro Martínez verður í leikmannahópi Manchester United sem mætir Leeds í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Martínez fór mikinn í viðtali eftir 2-0 tap gegn Atletico Madrid í vikunni og gagnrýndi félagið í leikmannálum. Hann sagði að stjórnendur félagsins beri ábyrgð á því að leikmannahópnum skorti breidd.

„Það vita allir að ég ég tilfinningaríkur og ég lifi fyrir fótbolta af miklum krafti. Pirringurinn eftir tapið varð til þess að ég sagði mína skoðun á stað og tíma sem var sennilega ekki réttur og ég biðst afsökunar á því," sagði Martínez í yfirlýsingu í gær.
Martínez biðst afsökunar og fær sekt
TENGT EFNI

Martínez biðst afsökunar og fær sekt

Michael Carrick, stjóri United, segir að Martínez verði í leikmannahópnum gegn Leeds.

„Það er góður andi innan hópsins og félagsins. Úrslitin hafa ekki verið að óskum en samheldnin er til staðar. Við viljum bæta úr þessari stöðu sem fyrst," segir Carrick.

Það er komin mikil pressa á Michael Carrick en Man Utd er aðeins með sex stig eftir sex umferðir. Aðrar fréttir af leikmannamálum United fyrir leikinn gegn Leeds eru þær að Luke Shaw og Kobbie Mainoo eru tæpir; Benjamin Sesko er meiddur og ekki vitað nákvæmlega hvenær hann verður klár í slaginn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.