16.10.26 - 12:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meðvitaður um að hann mun missa leikmenn frá sér í vetur

Jói Kalli er þjálfari FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Margir leikmenn hjá FH sem hafa átt nokkuð gott tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jói Kalli er þjálfari FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tvær umferðir eru eftir af Bestu deildinni en þegar eru mörg félög farin að huga að næsta tímabili.
FH er svo gott sem öruggt með sæti sitt í deildinni og hafa leikmenn hjá liðinu, sem var yngt upp fyrir tímabilið, vakið athygli fyrir frammistöðu sína í sumar. Í liðinu eru nokkuð margir leikmenn í yngri kantinum sem gætu tekið skref upp á við í fótboltakeðjunni í vetur.
U21 landsliðsmennrir Tómas Orri Róbertsson og Baldur Kári Helgason hafa átt gott tímabil, Jökull Andrésson hefur verið öflugur í markinu, Oliver Stefánsson kom í glugganum og við það batnaði varnarleikur liðsins til muna, Kjartan Kári Halldórsson hefur verið duglegur að skora og leggja upp og hraðasti leikmaður deildarinnar, Gils Gíslason, er á blaði hjá félögum erlendis. Þá var sagt frá því í síðustu viku að Róbert Hugi Sævarsson væri að æfa með Hammarby í Svíþjóð.

TENGT EFNI
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
Þjálfari FH, Jóhannes Karl Guðjónsson, ræddi við Fótbolta.net í dag. Hann var spurður hvort hann væri að búast við breytingum á hópnum í vetur.
„Auðvitað vill maður ekki missa leikmenn en við viljum samt sem áður að menn geti tekið skrefið og helst náttúrulega upp á við og vonandi út í atvinnumennsku. Það er það sem að við viljum hjálpa okkar leikmönnum að gera og það eru margir leikmenn sem hafa staðið sig virkilega vel," segir Jói Kalli.
„Auðvitað óskar maður þess að menn nái sem lengst á sínum ferli, en á sama tíma myndi maður helst vilja halda sem flestum. Ég geri mér samt alveg grein fyrir því að það mun ekki verða niðurstaðan. Vonandi verður þetta bara þægilegur ballans á því að geta selt menn erlendis og að sama skapi gætum við þá fyllt inn í á réttan hátt. Vonandi verður þetta ekki of mikið rót," segir þjálfarinn.