Birkir Bjarnason er mættur á fréttamannafund íslenska landsliðsins. Hann er þar sem fyrirliði liðsins. Þetta staðfesti Arnar Viðarsson, landsliðsþjálfarinn, á fundinum.
Birkir á að baki 101 landsleik fyrir íslenska landsliðið.
Birkir á að baki 101 landsleik fyrir íslenska landsliðið.
Arnar segir að allir hafi tekið þátt í æfingu liðsins í dag en það sé ólíklegt að Andrarnir, Andri Fannar Baldursson og Andri Lucas Guðjohnsen spili á morgun gegn Armeníu á morgun vegna meiðsla.
Það sé frekar horft á þá fyrir leikinn gegn Liechtenstein á mánudag.
„Andrarnir eru í sérprógrami og mjög ólíklegt að þeir taki þátt í leiknum á morgun, við erum meira að horfa til mánudagsins með þá tvo. Allir aðrir eru nokkuð fit held ég," sagði Arnar.
Athugasemdir