Heimir Guðjóns: Í kvöld skemmtum við okkur og þrýstum niður nokkrum köldum


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson þjálfari FH var ánægður með að enda tímabilið á sigri. FH vann 3-1 gegn KR í dag og tryggði þar með 5. sæti í deildinni.
„Það er bara sterkt að klára þetta með sigri. Við náðum fyrstu markmiðum okkar að koma okkur í topp 6, markmið númer 2 var að koma liðinu í Evrópukeppni. Það heppnaðist ekki en það voru margir leikmenn sem stigu upp, margir ungir leikmenn sem að komu í stór hlutverk. Við þurfum bara að halda áfram að byggja á því sem við gerðum í sumar."
FH var í neðri hlutanum í fyrra og nálægt því að falla niður um deild. Það voru margir sem spáðu liðinu verra gengi en raunin var og því hægt að vera nokkuð ánægðir með þetta tímabil.
„Þetta er jákvætt og eins og ég sagði þá eru framfarir á liðinu, það er það sem við vildum sjá. Svo er það bara okkar að vinna vel í vetur og koma klárir í næsta tímabil."
Það eru nokkrir lykil leikmenn hjá FH sem renna út á samning í lok tímabils. Heimir segir að það verður skoðað á komandi vikum og ákveðið hvort verður endursamið við leikmenn.
„Við förum bara í það á mánudaginn, í kvöld bara skemmtum við okkur og þrýstum niður nokkrum köldum og svo bara á mánudaginn förum við í þetta."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.



