Fotbolti.net
27.06.26 - 13:09
Brynjar Ingi Erluson

Draumur allra fótboltamanna að mæta Messi - „Við erum baráttufólk með stór hjörtu“

Vozinha

Vozinha

Canon

Mynd: EPA

Markvörðurinn Vozinha, sem varð frægur á einni nóttu á mótinu, segir heimsmeistaramótið vera frábært svið fyrir Grænhöfðaeyjar til að sýna úr hverju liðið er gert. Hann vonast jafnframt til þess að liðið geti orðið fyrirmynd næstu kynslóðar.
Maður dagsins á HM - Kominn með sex milljónir fylgjenda eftir stórleikinn gegn Spáni
TENGT EFNI

Maður dagsins á HM - Kominn með sex milljónir fylgjenda eftir stórleikinn gegn Spáni

Grænhöfðaeyjar eru að spila á sínu fyrsta heimsmeistaramóti og hafa þegar tryggt sér sæti í 32-liða úrslitum.

Landsliðið hefur unnið hug og hjörtu margra fótboltaunnenda um allan heim og stefnir á að halda ævintýrinu áfram.

Jafnteflið gegn Sádi-Arabíu í nótt tryggði liðinu sæti í næstu umferð þar sem heimsmeistarar Argentínu bíða.

Hinn fertugi Vozinha stal sviðsljósinu í fyrstu umferðinni í markalausa jafnteflinu gegn Evrópumeisturum Spánar og hefur síðan vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum.

Hann er nú með 17 milljónir fylgjenda á Instagram og er ein af fallegustu sögum þessa heimsmeistaramóts.

„Enginn okkar gat leyft sér að dreyma um þetta en við vissum að við hefðum gæðin. Þegar við mættum á HM héldu eflaust margir að við myndum ekki vinna einn einasta leik. Við erum hins vegar með frábært lið og gæðamikla leikmenn.“

„Það er ánægjulegt að vera komnir áfram í 32-liða úrslitin og það verður geggjað að mæta Argentínu. Það er draumur allra fótboltamanna að spila gegn Argentínu og Lionel Messi.“

„Við komum ekki hingað til að ná í jafntefli. Við reyndum alltaf að vinna leikinn en vissum að það yrði ekki auðvelt. Sádi-Arabía er líka með mikil gæði og er vön því að spila svona leiki. Við reyndum allt til að skora en það tókst ekki. Allir sáu að við vorum meira með boltann og fengum fleiri færi. Við verðskulduðum að fá hrós fyrir frammistöðuna.“

„Við komum frá lítilli þjóð en við vitum hvernig á að berjast. Það eru kannski margir sem halda að leikmenn Grænhöfðaeyja séu ekki nógu góðir en við höfum sýnt að við erum með gæði og mættir hingað til að berjast. Við getum barist á hvaða stórmóti sem er.“

„Við ólumst upp við mikla erfiðleika og foreldrar okkar, afar og ömmur fórnuðu miklu og kenndu okkur að meta það sem við höfum. Við höfum sýnt þá þrautseigju sem fólkið á Grænhöfðaeyjum býr yfir, ástríðuna sem við berum fyrir þjóð okkar og að við erum ekki aðeins hér fyrir liðið heldur fyrir alla landsmenn Grænhöfðaeyja, hvar sem þeir eru staddir í heiminum. Við erum baráttufólk með stór hjörtu.“

„Það er ekki hægt að lýsa því þegar barn grætur fyrir framan okkur. Við erum hér til að vera fyrirmyndir fyrir börnin, og ekki bara þau. Hver veit nema þau muni einn daginn eiga fyrirmyndir sem þau geta litið upp til og sagt að þau vilji verða eins og Stopira, Ryan Mendes eða einhver annar leikmaður landsliðs Grænhöfðaeyja,“ sagði Vozinha.
Draumur allra fótboltamanna að mæta Messi - „Við erum baráttufólk með stór hjörtu“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.