Brest virti hinstu ósk þjálfarans

Mynd: Brest

Mynd: Brest
Franska félagið Brest hefur fundið arftaka Eric Roy, sem lést á dögunum, en Julien Lachuer hefur verið ráðinn þjálfari liðsins til næstu tveggja ára.
Roy stýrði Brest frá 2023 og þar til hann féll frá þann 17. júní síðastliðinn eftir að hafa glímt við krabbamein í brisi í þrjú og hálft ár.
Hann náði því magnaða afreki að koma Brest í Meistaradeildina árið 2024. Þar stóð liðið sig frábærlega og komst áfram í útsláttarkeppnina, þar sem það féll úr leik gegn Paris Saint-Germain.
Fráfall Roy skók fótboltaheiminn en Brest hefur nú fundið arftaka hans í Lachuer, sem lék sem markvörður hjá félaginu frá 2005 til 2010.
Hinsta ósk Roy var að Lachuer, sem var aðstoðarmaður hans hjá Brest, tæki við liðinu og félagið hefur nú virt þá ósk.
„Julien Lachuer hefur tekið að sér það mikla ábyrgðarhlutverk að halda áfram því starfi sem Eric Roy hóf. Hann mun koma að verkefninu, sem hægt er að horfa á sem eðlilegt framhald, með djúpan skilning á félaginu,“ segir í yfirlýsingu Brest.

???????????????????????? ???????????????????????????? ???????????????? ???????? ????????????????????????????????????????? ????’???????????????? ???????????? ?????
— Stade Brestois 29 (@SB29) June 27, 2026
Le Stade Brestois est heureux d’officialiser la nomination de Julien Lachuer au poste d’entraîneur de l’équipe professionnelle pour les 2 prochaines saisons.
Souhaitée par Éric Roy avant sa… pic.twitter.com/a0VNbBwmk3