07.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal sagt undirbúa tilboð í leikmann Leipzig

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Englandsmeistarar Arsenal eru að undirbúa tilboð í norska landsliðsmanninn Antonio Nusa, sem spilar með RB Leipzig í Þýskalandi.
Nusa, sem er 21 árs, hefur staðið sig vel hjá Leipzig frá því að hann kom frá Club Brugge fyrir tveimur árum. Norðmaðurinn hefur komið að fimm mörkum í sex leikjum á þessari leiktíð og vakið áhuga nokkurra stórliða.
Samkvæmt London Standard undirbýr Arsenal 34 milljóna punda tilboð í vængmanninn en Leipzig er talið vilja fá að minnsta kosti 55 milljónir punda fyrir hann.
Tottenham, Newcastle og Aston Villa hafa einnig verið orðuð við Nusa sem lék alla leiki Norðmanna á HM í sumar og skoraði eitt mark.