07.10.26 - 10:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dvelja í bæ sem er í miklum metum hjá Modric
Skrifar frá Króatíu

Frá æfingu Íslands í gær.

Mynd: KSÍ

Luka Modric er besti fótboltamaður í sögu Króatíu.

Mynd: EPA

Frá æfingu Íslands í gær.

Mynd: KSÍ

Íslenska kvennalandsliðið undirbýr sig þessa dagana fyrir fyrri leik sinn gegn Króatíu í umspili fyrir HM. Undirbúningurinn fer að miklu leyti fram í Rovinj í Króatíu.
Rovinj er einn þekktasti ferðamannabær Istríu og stendur við Adríahafið, en undanfarin ár hefur bærinn einnig orðið þekktur sem vinsæll áfangastaður fyrir fótboltalið í æfingabúðum.

Króatíska karlalandsliðið hefur sérstaklega sterka tengingu við staðinn. Landsliðið notaði Rovinj sem hluta af undirbúningi sínum fyrir EM 2008, HM 2010, EM 2016 og HM 2018. Þar hafa því margar af stærstu stjörnum króatíska fótboltans síðustu tvo áratugi æft, þar á meðal Luka Modric, Ivan Rakitic, Mario Mandzukic, Darijo Srna og Mateo Kovacic.
Rovinj hefur greinilega heillað stærstu stjörnu króatíska fótboltans utan vallar. Í sumar greindi króatíska miðillinn 24sata frá því að Modric hefði skoðað ókláraða villu í Rovinj og að fjölskylda hans hefði áður sýnt áhuga á fasteignum í nágrenni borgarinnar.
Æfingarnar hjá íslenska liðinu fara fram hjá NK Mladost Rovinjsko Selo, félagi sem var stofnað árið 1970. Heimavöllur þess, Kunfin, var tekinn í notkun árið 2008 og þar er bæði náttúrulegur grasvöllur og gervigrasvöllur ásamt stúku og flóðlýsingu.
Leikurinn sjálfur fer þó ekki fram í Rovinj heldur í Pula, um 40 kílómetrum suður eftir Istríuskaganum. Ísland fær því rólegt umhverfi í Rovinj til að undirbúa sig, áður en haldið verður til Pula í mikilvægan leik á föstudaginn.
Fótbolti.net er á staðnum og síðar í dag birtast viðtöl við nokkra leikmenn landsliðsins.