07.10.26 - 10:44
Elvar Geir Magnússon
Rifbeinsbrotinn Gylfi fær smá hvíld - „Maður getur ekki misst af landsleikjum“

Gylfi í landslek í glugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi í landslek í glugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið að spila í gegnum rifbeinsbrot en verður að öllum líkindum hvíldur í næsta leik Víkings, sem mætir ÍA á heimavelli á sunnudagskvöld.
Eftir markalausa jafnteflið gegn Eistlandi í gær sagði Gylfi að brotið þurfi smá tíma til að gróa og jafna sig. Hann myndi halda áfram að æfa en forðast snertingu næstu 7-10 dagana.

TENGT EFNI
Gylfi Sig: Þreytandi að deyfa þetta fyrir hvern leik til að geta spilað
„Þetta er búið að vera erfitt og þreytandi að deyfa þetta fyrir hvern leik til að geta spilað en maður getur ekki misst af landsleikjum," sagði Gylfi við Fótbolta.net eftir leikinn í Tallinn í gær.
Gylfi hefur verið að spila með ákveðið hlífðarvesti, eða 'brynju' eins og það hefur verið kallað. Hann vonast til þess að leikurinn í gær hafi verið sinn síðasti í brynjunni.
Gylfi hefur átt frábært tímabil með Víkingi en liðið hefur þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Hann ætti að vera orðinn klár í slaginn fyrir næsta landsleikjaglugga.
Ísland er á toppi riðilsins í C-deild Þjóðadeildarinnar með tveimur stigum meira en Eistland og mun í nóvember leika útileik gegn Búlgaríu og heimaleik gegn Lúxemborg. Efsta sæti riðilsins gefur sæti í B-deildinni en liðið í öðru sæti fer í umspil um að komast upp.