Fotbolti.net
07.10.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Þyrla flaug með risastóra Messi-treyju yfir heimabæ hans

Lionel Messi spilaði kveðjuleik sinn í nótt

Lionel Messi spilaði kveðjuleik sinn í nótt

Canon

Mynd: EPA

Kveðjuleikur Lionel Messi með argentínska landsliðinu fór fram í nótt þar sem hann skoraði eitt og lagði upp tvö í 3-0 sigri á Benín.
Messi kvaddi með stæl
TENGT EFNI

Messi kvaddi með stæl

Mikið var um dýrðir í kringum leikinn enda einn besti knattspyrnumaður sögunnar að kveðja landsliðið.

Monumental-leikvangurinn var troðfullur af ástríðufullum heimamönnum og bæði Lionel Scaloni og nafni hans Messi felldu tár við fallega kveðjuathöfn.

Messi hefur verið heiðraður víða um Argentínu og kveðjurnar borist úr öllum áttum. Hann var gerður að heiðursfélaga hjá River Plate og í Rosario, heimabæ hans, mátti sjá magnað sjónarspil þegar þyrla flaug yfir borgina með risastóra treyju hans hangandi undir sér.

Hægt er að sjá það hér fyrir neðan. Argentínumenn kunna að kveðja goðsagnir sínar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.