Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 07. nóvember 2017 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hannes: Vorum allir þrír að spila á Íslandi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta verður ekki betra," sagði landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson um aðstæður í Doha í Katar. Íslenska landsliðið verður í Katar næstu daga og mun þar spila vináttulandsleiki gegn Tékklandi og heimamönnum.

„Það er sól og blíða og hér er allt til alls. Þetta er skemmtileg, öðruvísi ferð," sagði Hannes einnig um aðstæður í Katar.

Í hópnum núna eru fjórir markverðir og samkeppnin um sæti í hópnum sem fer til Rússlands næsta sumar er mikil.

„Við erum vel settir með markmenn núna. Þegar ég var fyrst tekinn inn í landsliðið vorum við allir þrír (sem voru í hópnum) að spila á Íslandi. Núna erum við fimm að spila úti og það er mikil samkeppni og það er frábært."

Hannes gerir ekki ráð fyrir að spila mikið í þessari ferð.

„Það hefur verið aðeins talað um að það verði minni spiltími fyrir okkur sem spiluðum mest í undankeppninni, þannig að ég geri ekki ráð fyrir því að spila sérstaklega mikið, en það kemur í ljós. Ég verð ef ég fæ mínútur," sagði Hannes að lokum.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan. Þar ræðir Hannes m.a. um gengið hjá liði sínu, Randers í Danmörku. Það hefur ekki verið sérstaklega gott, en liðið situr á botni dönsku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner