fim 07. nóvember 2019 20:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
United komið 2-0 yfir - Sjáðu fallegt mark Martial
Mynd: Getty Images
Manchester United er 2-0 yfir gegn Partizan Belgrad í Evrópudeildinni þegar fyrri hálfleiknum er ekki lokið.

Þetta er í fyrsta sinn frá 4-0 sigrinum gegn Chelsea í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar að United skorar meira en eitt mark á heimavelli sínum, Old Trafford.

Mason Greenwood, 18 ára, kom United yfir og skoraði Anthony Martial annað markið.

Mark Martial var einstaklega flott og má sjá það með því að smella hérna.

United mun tryggja sig áfram í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar með sigri í kvöld.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner