Fotbolti.net
25.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Messi hlaut 'spænsku nóbelsverðlaunin'

Messi hlaut 'spænsku nóbelsverðlaunin'
Canon

Mynd: EPA

Argentínska fótboltagoðsögnin Lionel Messi hlaut 'spænsku nóbelsverðlaunin' svokölluðu á dögunum, fyrir starf sitt í þágu fótboltans og fyrir að ná sögulegum árangri í fótboltaheiminum.
Princesa de Asturias verðlaunin eru afar eftirsótt og er Messi fyrsti einstaklingurinn til að hljóta þau einn og sér. Spænska landsliðið var heiðrað eftir að hafa unnið HM 2010 og árið 2012 voru Iker Casillas og Xavi Hernández heiðraðir með verðlaunum. Pelé hlaut verðlaunin 1997 en ekki vegna ferils síns í fótbolta, heldur vegna starfa hans í þágu mannkyns.

Tennisstjarnan Serena Williams var heiðruð í fyrra og nú er komið að Messi, sem er yfir sig stoltur. Michael Schumacher, Rafael Nadal, Usain Bolt og Michael Phelps eru meðal fyrrverandi sigurvegara

„Faðir minn var yfir sig spenntur út af þessari verðlaunaafhendingu. Við vissum að það yrði erfitt fyrir mig að taka við verðlaununum í persónu vegna mikils leikjaálags en pabbi heimtaði að ég tæki mér nokkra daga til að koma og taka við verðlaunum," sagði Messi.

„Þessi verðlaun hafa meiri þýðingu heldur en það sem ég geri á fótboltavellinum eða það sem ég hef afrekað á ferli mínum sem fótboltamaður. Við pabbi erum mjög stoltir."
Messi hlaut 'spænsku nóbelsverðlaunin'
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.